This isn't an official website of the European Union

Evrópurútan: Sendiherra ESB heimsótti Akranes, Blönduós, Sauðárkrók, Akureyri og Reykjanesbæ

Evrópurútan er nú í hringferð um landið þar sem Rannís mun koma við í 12 bæjum um land allt og kynna mismunandi Evrópustyrki og segja frá árangri Evrópustyrkja í heimabyggðum. Sendiherra Evrópusambandsins slóst með í för og heimsótti Akranes, Blönduós, Sauðárkrók, Akureyri og Reykjanesbæ.

 

Evrópurúta Ranníss er nú í hringferð um landið þar sem starfsfólk Ranníss mun koma við í 12 bæjum um land allt og kynna mismunandi evrópustyrki og vekja athygli á fjölmörgum fjármögnunartækifærum sem felast í samstarfsáætlunum ESB á íslandi.

Dagana 16. og 17. september slóst sendiherra Evrópusambandsins, Clara Ganslandt, og starfsfólk sendinefndar ESB með í för og heimsóttu þau Akranes, Blönduós, Sauðárkrók, Akureyri og Reykjanesbæ.